Jul 30, 2004
Myndir....


Talaði við Westenterten á barnum í gær... Hann er alveg bráðum mjög fljótt eftir smá að fara að klára þessar myndir... En fyrir hina óþolinmóðu má kíkja á BARÐASTAÐI að skoða nokkrar myndir og mæli ég hiklaust með því...

VONAST TIL AÐ SJÁ SEM FLESTA Á NEISTAFLUGI!! (búin að hitta nokkra góða en vil sjá fleiri....)

Heimsleiðtoginn

FALLEGA FÓLKIÐ!!!


Fallegt fólk með meiru!!

Posted at 05:43 am by nobbarar
Comments (1)

Jul 10, 2004
Og loks mælir Heimsleiðtoginn....


Sælt verið fólkið !

Ég vil bara þakka ykkur fyrir eina bestu ef ekki bara allra bestu og skemmtilegustu helgi sem ég hef upplifað! Ég vona að einhver lesi þetta ennþá en annars skrifa ég bara við sjálfa mig og það er svosum ekki leiðinlegt.....

Það kom mér mjög á óvart að þið skylduð öll vera svona skemmtil... NEI, það kom mér alls ekki á óvart að þið skylduð öll vera svona frábær og skemmtileg og þetta var einkar vel heppnað í alla staði. Það voru allir í miklu keppnisskapi fyrir sitt lið og sinn lit og greinilegt að við erum öll mikið keppnisfólk og miklir hugsuðir því hverjir aðrir en snillingar gátu á klukkutíma reddað umferðaskiltum, riffluðum smokkum, klósettsetum og Súellen meðlimum svo aðeins fátt eitt sé talið???

Það voru margir atburðir sem standa uppúr í minningunni Heiða Limbódrottning, Fjóla gogo dansari, Berglind samkynhneigða Beljan, kossinn magnaði hjá Díönu og Robba, breikið hennar Stellu, G-strengurinn hennar Steinunnar, þegar Elvar Árni varð undir hlassinu og kramdist, þegar Tryggvi fékk spark í rassinn, þegar ég borðaði meira en Barði á grillinu, lélegasta ball í heimi, bjórpásan í róðrakeppninni, Denni sem vaknaði bara svona...OG bara svo margt, margt fleira!!!

Ég vona að við náum að endurtaka þetta eftir 5 ár en þá verðum við 29 ára með hrukkur og 10 börn og bumbu (fleiri en í dag)....

Megið þið hafa það sem allra best og vonandi fáum við bráðum myndir sem við getum svo skoðað að 5 árum liðnum :)

Takk fyrir frábæra helgi og fyrir að vera öll svona hress! (sérstaklega kannski María F og Siggi Freyr fyrir að þola okkur og vera samt edrú)

Sjáumst fljótt,

Heimsleiðtoginn


Posted at 06:00 pm by nobbarar
Make a comment

Jun 1, 2004
Ball með Pöpum á Eskifirði??


Er einhver spenntur fyrir balli með Pöpunum á laugardagskveldinu þar sem það er svosum ekkert merkilegt að gerast hér í Nesk?? Væri ekki hægt að redda rútu og fara með okkur yfir?

Endilega komið með komment á þetta...

Olla

Posted at 09:43 am by nobbarar
Make a comment

May 26, 2004
komið að því borga :o)



Það er sko barasta allt að gerast 29 búnir að skrá sig og einn sem er ekki búin að gefa endanlegt svar þannig að við gætum orðið 30 sem væri alveg snild.

Ég er búinn að stofna reikning í Sparisjóði norfjarðar og reikningsnúmerið er auðvita 1980  (semsagt 1106- 26-1980). kt: 181180-3589

Það er komið svona næstum því verð og það er nálægt 4500kr þannig að eigum við ekki bara að segja að þetta séu 4500kr. og svo leggjum við bara afganginn inn á reikninginn okkar 1980 og ávöxtum þessar krónur þar til á næsta árgangsmóti eftir 10 ár.   Hvað fynnst fólki um það??

Endilega látið mig vita hvort þið eruð með eða á móti þessari hugmynd en annarrs höldum við okkur bara við þetta og vil ég biðja fólk um að byrja að leggja inn á sem fyrst

með bestu kveðjum og hlakka til að koma heim

Díana Dögg
 

Posted at 01:44 pm by nobbarar
Comments (1)

May 25, 2004
Betra er seint en....

Hérna kemur mitt "farsæla" æviágrip

eftir 10. bekkinn tóku við tímar sem einkenndust af rembingi, þambi og egilsstaðarambi, en þangað náði ég í kall. ég nam við verkó aust og útskrifaðist þaðan, með sævari tippalingi og fleirum, vorið 1999. þar sem ég var skíthrædd við borg óttans ákvað ég að safna hugrekki í eitt ár áður en ég tækist á við hana og háskólanámið og allt klámið. ég flutti til egilsstaða og vann fyrst á hóteli og svo í tuskubúð, svipaðri þeirri og mamma og pabbi Díönu eiga. eitthvað fór úrskeiðis með plönin og það varð úr að í febrúar 2000 náði kallinn með ótrúlegri leikni að skjóta þannig að hann hitti í mark og úr varð krakki. í október var ég komin með bumbu dauðans og það var skorið á hana og hin myndarlegasta stúlka kom þaðan út, sem fékk nafnið lilja hrönn. ég var í þunglyndisbænum (egilsstöðum) í tvö löng ár í viðbót en þá var ég loks tilbúin að takast á við óttann minn (allt betra en egilsstaðir) og flutti til höfuðstaðarins og hóf nám í líffræði. þetta nám er bara snilld og líklega er þarna að finna helstu fyllibyttur og mestu flaming gayja háskólans. við fáum frítt að drekka sem gæti verið ástæðan fyrir því að við djömmum feitt hverja helgi. Já, ég gæti trúað að það væru fleiri í líffræði ef þeir vissu af þessum fríðindum, hehe.

fyrir ári síðan skildu leiðir okkar kalls og nú lifi ég góðu, nei, frábæru lífi sem einstæð móðir hér á stúdentagörðum og er dugleg að djamma eins og góðri einstæðri móður sæmir. lilja hrönn er í leikskóla hér á görðunum og líkar vel en hún býr hjá pabba sínum á sumrin. með náminu er ég að vinna á líffræðistofnun að skoða pöddur og svo er ég að þjóna annars konar pöddum í versölum um helgar. þar að auki hef ég verið virk í stjórnmálunum en ég sit í stjórn vg og líka í stjórn ungliðahreifingarinnar þar sem ég gegni stöðu ritara. á dögunum var ég kjörin varaformaður HAXA (nemendafélag líffræðinga), og gegni að auki embætti skemmtanastjóra þessa félags og mun ég halda utan um líffræðidjammið næsta vetur sem á eftir að verða sveitt. ég er nú að klára annað árið og klára því bs-inn eftir ár en þá reikna ég með að taka masterinn, að lokinni sumardvöl í tælandi og interaili um evrópu . ég mun að sjálfsögðu vera í mínum uppáhaldsbæ í sumar, neskaupstað. ég verð að vinna á náttúrustofu austurlands og verð að rannsaka plöntur en ég fékk einmitt styrk til þess frá nýsköpunarsjóði námsmanna. ég er farin að hlakka mikið til að koma heim og hitta ykkur öll.


Posted at 03:47 pm by nobbarar
Comments (1)

May 24, 2004
Lagasafn

Daginn/kvöldið/moren allir saman!
 
  Mig bráðvantar hugmyndir fyrir lagavali fyrir helgina frægu! Endilega ef þið munið eftir einhverjum frægum music hitturum síðan í denn þá endilega kommenteriði hérna við hliðina! Er komin með allnokkur bærileg lög frá því að maður var að fá hár á punginn!

  Hils, Barði Westenterten

Posted at 12:32 pm by nobbarar
Comments (1)

May 18, 2004
Heil og sæl

 

Sindri er mættir á veraldarvefinn með smá æviágrip.

Eftir gaggó lá mín leið norður ál Akureyri í Menntaskóla. Þar kynntist ég ýmsum kynjaverum og fann sjálfan mig vel með þeim.Eftir tvo vetur greindist ég með snillingasjúkdóm og var í nokkra mánuði að temja hann. Ég kláraði stúdentsprófið árið 2001 í ‘Armúla eftir viðveru í ME og sumarskóla FB. Mikill mjöður og gleði runnu til sjávar á þeim tíma og sérstaklega þá eftir sumrin heima.

Byrjaði í Búálfum og haustið 2001 flutti ég til danaveldis sem kallaði til mín með sínum möguleikum og ódýra öli. Þar var ég í listanámi við Lýðháskólann í Vallekilde. Kom heim til Íslands 2002 og byrjaði minn feril sem fóstri á hjallastefnuleikskóla. Hausið 2002 byrjaði ég í Kennó og fann mig vel þar. Ákvað að taka mér frí vorið 2003 og byrjaði aftur að vinna á leiksskóla og hef verið að þeirri iðju síðan.Eftir danmerkurförina hef ég verið að spila og syngja mikið á árshátíðum giftingum pöbbum og fl. bæði með Búálfum og einnig með mínum vinum að norðan í gleðibandinu 3 blind jellyfish. Ætla nú ekki að hafa þetta mikið lengra. Er allavega búinn að hafa það mjög gott og er eiginlega ennþá sami gamli Sindri og í gaggó fyrir utan nokkur hugguleg aukakíló og frábærar lexíur um þessa furðuför sem lífið býður upp á

Hlakka rosalega til að hitta ykkur öll og endurnýja gömul og góð kynni.

Kær kveðja

Sindri


Posted at 03:07 pm by nobbarar
Make a comment

May 17, 2004
mitt líf.......hingað til!!!

 

Jæja....sælt veri fólkið Díana hér!!

Þá er ég loooooksins búin í prófunum og fer nú í það að einbeita mér 100% að Árgangsmótinu okkar :o)

 

 

Já ég fór sem sagt í VA eftir 10 bekk og átti 3 stórgóð ár þar, útskrifaðist 2000. Fór reyndar í millitíðinni sem skiptinemi til Bandaríkjanna, nánar tiltekið til Solon sem er snobbær í Cleveland, Ohio en þessi upplifun var náttúrulega bara snilld. Með skólanum vann ég svo alltaf eins og mother fokker í Egilsbúð og hjá mömmu og pabba, en á sumrin á Sumarhótelinu. 

 

Eftir útskrift vann ég eitt sumar í Egilsbúð og í ágúst fór ég til Sviss sem Au-pair.  Geggað gaman....meira að segja það gaman að ég bjó þar í 2 ár og náði að ferðast slatta um Evrópu á þeim tíma. Ég var Au-pair í 1½ ár en fór svo að sjá um bar á ****hóteli upp í Svissnesku ölpunum í hálft ár.  Einn sá best tími ever..... djamm upp á dag, allan tíman....heavý vinna, skíði, sólinn, og ölið.... algjörlega toppurinn.

 

Ég flutti aftur heim í maí 2002 og vann það sumar í Egilsbúð (kemur ekki á óvart),en flutti svo suður og fór í Háskóla Íslands þarna um haustið. Þar byrjaði ég í diplóma námi sem heitir Viðskiptatungumál, en líkaði frekar illa þannig að þegar það voru 5 vikur í próf skipti ég um nám og hoppaði yfir í Þýskunám og tók þá 1 ár í því. 

Svo byrjaði ég í ferðamálafræði núna í haust og held að ég sé endanlega búin að finna mig í þessu skólakerfi. Planið er að klára Bs. Í ferðamálafræði eftir 2 ár og krydda þetta með smá meiri Þýsku, held þetta verði bara góð blanda :o)

 

Síðasta sumar og í vetur með skólanum hef ég verið að vinna á veitingastaðnum hjá Sigga Hall á Óðinsvéum og líkar bara stórvel þar, býst við að vera þar í einhvern tíma í viðbót (ég var einmitt að koma af Árshátíð Sigga Hall rétt áðan haldin á Flúðum gist og læti svo ég skrifa þetta hér í þynnkunni). Í sumar fékk ég alveg stórgóða vinnu (að ég vona) hjá Fosshótelum á Laugum í Reykjadal og verð því fyrir norðan í sumar (endilega látið mig vita ef þið eruð á leiðinni á djammið á Akureyri)!!!

 

Já það er semsagt bara allt gott að frétta af mér og ég er orðin þrusu spennt fyrir helginni :o)

 

 

Bestu kveðjur Díana Dögg


Posted at 02:57 pm by nobbarar
Comments (1)

May 10, 2004
Vinsamlegast gefið ykkur frammmmmm......

Jæja þakka fyrir góð viðbrögð við neyðarkalli um mætingu á Árgangsmótið okkar, en það eru nokkrir ekki búnir að svara.  Þannig að Gissur, Ásgeir, Davíð Sig, Elvar Grettis, Halldór Eggjarts og Einar Torf eru allir mættir á torsalistan :-) en það þarf bara eitt símtal eða e-mail til þess að komast af honum !!!


Annars er bara allt í góðum málum með mótið okkar 26 POTTÞÉTTIR einstaklingar búnir að skrá sig en það væri samt gaman að sjá þessa tölu verða að 30. 


Svo hvet ég alla til að setja inn ævisögurnar....


.... bestu kveðjur og hlakka til helgarinnar

Díana Dögg

Posted at 11:42 am by nobbarar
Comments (2)

Apr 24, 2004
Dagskrá bestu helgar 2004!!!


 

KÆRI ÁRGANGUR´80



Jæja þá er uppkast af hugmynd fyrir ALLSTARS- Árgangsmót 80 komið :o)

Eitthvað hefur hliðrast til af því sem er innifalið í verðinu, t.d. vorum við að fá alveg ótrúlegt tilboð frá Egilsbúð sem við gátum einfaldlega ekki hafnað þannig að nú er Pizzaveisla, 2x Öl, Trúbbakvöld, leiga á húsi, meðlæti með grillveislunni, bolir, rútuferð, og annar kostnaður orðið að pakkanum okkar og er verðið búið að lækka. Er um 3000-4000 núna endanleg tala kemur ekki fyrr en vitað er hversu margir mæta!!!!

 

Meðfylgjandi er gróflegt plan af geggjaðri helgi

 

Viljum við minna alla á að þetta er “survivor of the fittest helgi” þar sem leikir og lífsgleði eru í fyrirrúmi.

 

 

Föstudagur: Hittast í Egilsbúð kl 19:00 þar sem við fáum pizzaveislu og skoðum myndashow ofl sem við viljum ekki gefa upp strax, en þeir sem eru eitthvað tímabundnir vinsamlegast takið frá tíma til kl 00:00....en við hin höldum áfram djamminu og mætum hress og kát á Trúbbakvöld í Egilsbúð :o)

 

Laugardagur:  Hugmyndin er sú að hittast um 13:00 í kirkjugarðinum fyrir þá sem vilja heiðra minningu Rósu Maríu bekkjarsystur okkar, hver á sinn hátt.

Kl 14:00 ætlum við að rölta í gegnum gamla skólann okkar og skoða hann með Brynju kennara og röllta niður brautir minninga!! 

Um kl 14-15 byrjar skemmtunin við höfnina og ætlum við auðvita að tefla fram öllum þeim fjölda af kröftugu og öflugu liði úr okkar árgangi og rústa þessari keppni!!!!!!:o)

Kl 18:00 er svo mæting á sviðinu niður á bryggju þar sem rúta mun ná í okkur og flytja okkur á óvæntan áfangastað þar sem við höfum húsaskjól og ætlum að grilla, (hver og einn kemur með sitt kjöt, en við sköffum meðlæti) halda áfram með okkar skemmtiþema og djamma fram í rauðan dauðann....eða þar til við ákveðum að fara á ball :o)

 

Sunnudagur: Þá látum við okkur auðvita ekki vanta á sjóinn um 9:30 :o) hehe

Hittumst svo við sundlaugina þar sem við keppum í öllum greinunum þar og rústum þeim audda líka :o) Eftir þá viðureign hittumst við á áberandi stað í lystigarðinum og tökum á því í síðasta sinn og slúttum með stæl...... en auðvitað hittumst við svo aftur á ballinu um kvöldið :o)

 

Ath: þessi dagskrá er öll maka-og barnavæn nema þá kannski föstudagskvöldið!!

Posted at 11:02 am by nobbarar
Comments (1)

Next Page



   

<< January 2012 >>
Sun Mon Tue Wed Thu Fri Sat
01 02 03 04 05 06 07
08 09 10 11 12 13 14
15 16 17 18 19 20 21
22 23 24 25 26 27 28
29 30 31




Contact Me

If you want to be updated on this weblog Enter your email here:


rss feed

Blogdrive